SKÁLDSAGA Á ensku

To the Lighthouse

Sagan To the Lighthouse kom fyrst út árið 1927 og var fimmta skáldsaga Virginu Woolf. Hún gerist á tveimur dögum sem aðskildir eru tíu árum og snýst um tilhlökkun Ramsay fjölskyldunnar um ferð út í vita og minningar frá fyrri ferð þangað. Undir niðri er svo ákveðin spenna innan fjölskyldunnar. Eitt af meginþemum bókarinnar er barátta listmálarans Lily Briscoe við að halda í sköpunarkraft sinn í spennuþrungnum aðstæðum. Þá tekur sagan einnig á því hvernig fólk upplifir stríðstíma og hvernig tíminn breytir bæði fólki og minningum. Síðast en ekki síst fjallar sagan um togstreitu kynjanna og hvernig samfélagsmyndin gerir körlum kleift að nýta sér tilfinningar kvenna sér til framdráttar. Sagan brýtur upp form hinnar hefðbundnu skáldsögu þar sem tími, sjónarhorn og raunveruleikinn eru skoðuð með öðrum hætti. Hefur sagan verið talin meðal 100 bestu skáldsagna sem komið hafa út á ensku.


HÖFUNDUR:
Virginia Woolf
ÚTGEFIÐ:
2016
BLAÐSÍÐUR:
bls. 252

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :